Heilbrigðisráðherra staðfesti í dag tímamótasamning milli Landspítala og lyfjafyrirtækisins Gilead. Fyrirtækið er framleiðandi lyfsins Harvoni sem notað er við lifrarbólgu C og munu allir sjúklingar sem þjást af sjúkdómnum geta fengið lyfið, sér að endurgjaldslausu. Hátt í 1.000 manns eru smitaðir.