Brú yfir Fossvog frá Kársnesi yfir í Vatnsmýri er í forgangi hjá Kópavogsbúum þegar kemur að framkvæmdum að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra. Allar líkur séu á að um hana fari strætisvagnar auk hjólreiðafólks og gangandi vegfarenda. Þó sé óljóst hvenær hún geti orðið að veruleika.