Tugir þúsunda Sýrlendinga flúðu heimili sín í dag í kjölfar þess að hersveitir Sýrlandsstjórnar hófu mikla sókn í kringum borgina Aleppo með stuðningi rússneskra herflugvéla. Forsætisráðherra Tyrklands, Ahmet Davutoglu, sagði á leiðtogafundinum í London um ástandið í Sýrlandi að um 70 þúsund manns væru á leið til heimalands hans á flótta vegna átakanna.