Ilmur Kristjánsdóttir, varaborgarfulltrúi Bjartrar framtíðar, brast í söng á fyrsta sameiginlega fundi borgarstjórnar og ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkur í dag. Söng hún íslenska útgáfu af laginu Imagine eftir John Lennon, en S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar framtíðar, spilaði undir á gítar.