Linda Ósk Árnadóttir og Yousef Ingi Tamimi voru á stuðningsmannasvæðinu á ströndinni í Marseille í gærmorgun þegar mbl.is hitti þau. Á svæðinu eru í boði alls kyns leikir og þrautir og þau voru einmitt í einum leiknum þegar viðtalið var tekið; voru ekki svona til höfð alla jafna!