Í þætti dagsins af Korter í kvöldmat töfrar Óskar fram ekki eina, heldur tvær eldsnöggar uppskriftir sem báðar innihalda það sem allir elska; hamborgarhrygg. Annars vegar opna samloku fyrir fullorðna, með hleyptu eggi og hamborgarhrygg, og hins vegar tartalettur fylltar með hamborgarhrygg, sveppum og sætum kartöflum.