Donald Trump, forsetaframbjóðandi bandaríska Repúblikanaflokksins, skoraði í gær á stjórnvöld í Rússlandi að hafa uppi á tölvupósti í eigu Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda demókrata. Ummælin féllu á blaðamannafundi og hafa vakið hörð viðbrögð. Jafnvel ásakanir um föðurlandssvik.