mbl.is kíkti á Þjóðhátíð í dag og tók gesti og gangandi tali. Meðal þeirra sem urðu á vegi blaðamanna var Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum. Spurður um áherslur hátíðarinnar í ár sagði Elliði að Eyjamenn vildu að gestir tækju þátt í hátíðnni á þeim forsendum sem lagt hefði verið upp með í gegnum tíðina.