Freydís Borg Ágústsdóttir fæddist 22. desember árið 2013 en við 13 mánaða aldur var hún greind með litningagalla sem heitir Williams-heilkenni. Móðir Freydísar, Kristín Ýr Gunnarsdóttir, ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og safnar nú áheitum fyrir Einstök börn.