„Þetta gerir maður á meðan maður stendur í lappirnar,“ segir rennismiðurinn Márus Daníelsson um áhugamálið sem er mótorsport af ýmsu tagi. Það sé líka stór hluti af áhugamálinu að gera við og betrumbæta hjólin: að smíða íhluti og prófa þá síðan og meta hvort þeir hafi heppnast eða ekki.