Misjafnar áherslur eru hjá stærstu flokkunum sjö í innanríkismálum. Allir flokkar eru tilbúnir til að fara í breytingar á stjórnarskrá þó Sjálfstæðismenn séu varfærnastir en í samgöngumálum er meiri munur á hugmyndum flokkanna. Samfylking og VG vilja skoða lestarsamgöngur en Framsókn vill niðurgreiða innanlandsflug.