Rafmagnsverkfræðingurinn Einar Andresson er mikill áhugamaður um veiði. Hann býr á Egilsstöðum og er því vel staðsettur til að sinna áhugamálinu þar sem stutt er í stangveiði, skotveiði af ýmsu tagi og ekki síst á hreindýraveiðar. „Austurland er náttúrulega algjör paradís fyrir þá sem hafa gaman af því að veiða.“