Frá því að hann var unglingur hefur Bæring Jóhann Björgvinsson unnið með rafmagn. Nú starfar hann sem rafmagnsiðnfræðingur hjá Lýsi þar sem hann segist kljást við ólíkar áskoranir á degi hverjum. Hann segir það gefa mikið að starfa við framleiðslu á vörum sem hann hafi trú á.