Íbúar brasilísku borgarinnar Chapeco syrgðu knattspyrnuliðið sitt sem fórst í flugslysi í Kólumbíu á minningarathöfn sem var haldin í dag í hellirigningu. Athöfnin fór fram á knattspyrnuleikvangi liðsins Chapecoense en aðeins tíu dagar eru síðan íbúarnir studdu liðið til dáða á sama leikvangi.