52 manns fórust og hundruð slösuðust er öflugur jarðskjálfti skók norðurhluta eyjarinnar Súmötru í Indónesíu seint í gærkvöldi. Skjálftinn átti upptök sín í Aceh-héraði, þar sem hundruð bygginga hrundu til grunna. Yfirvöld hafa varað við að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar.