Um leið og áhöfnin um borð í TF-Líf kom auga á lík á ströndinni rétt vestan af Selvogsvita fór ekki á milli mála að Birna Brjánsdóttir væri fundin. Aðstæður voru þannig á svartri klettaströndinni að á því lék enginn vafi, að sögn Björns Brekkan flugstjóra. Þyrlusveitin var að klára sitt leitarsvæði.