Í kvöld var spilaður fyrsti riðillinn í keilukeppni WOW Reykjavik International Games í Keiluhöllinni í Egilshöll. Keppnin fór af stað með krafti því strax í þriðja leik náði Christopher Sloan frá Írlandi að spila fullkominn leik, þ.e. fellur í öllum köstum og 300 stig.