„Ég fæ alltaf næstum því hjartslátt eða straum niður bakið því þetta er svo fallegt hús,“ segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, um að koma í nýtt hús Vigdísarstofnunar sem verður vígt í dag. mbl.is skoðaði bygginguna á dögunum og ræddi við Vigdísi ásamt arkitektum byggingarinnar.