Margar af styttum borgarinnar fengu á sig rautt nef í dag þegar Ungmennaráð Unicef gekk um miðbæinn og skellti rauðum nefjum á þær styttur sem eru með nef sem eru innan seilingar. Framtakið var þáttur í átakinu Dagur rauða nefsins sem verður þann 9. júní og er stærsta fjáröflun Unicef á Íslandi.