„Ástandið hefur ekki verið slæmt hjá okkur í dag en ég myndi ekki vilja vera í Palm Beach eða Miami. Þar er virkilega verið að berja á þeim,“ segir Pétur Már Sigurðsson sem býr í Orlando í Flórída. Í Miami hefur flætt inn á götur borgarinnar og einnig stafar nokkur hætta af byggingarkrönum.