Almannavarnir í Kaliforníu vara við því að glæsibyggingar ríka fólksins í Los Angeles verði eldinum að bráð en yfir 200 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna kjarrelda í ríkinu. Mjög hvasst er í Los Angeles og nágrenni og því hætta á að eldarnir breiðist hratt út.