Einkennin voru væg og virtust saklaus í fyrstu. Aðallega hósti og þreyta. Það leið þó ekki á löngu þar til Sriyono fékk erfiða sjúkdómsgreiningu – hann er með asbestveiki. Sjúkdóminn fékk Sriyono eftir að hafa áratugum saman andað að sér asbest-trefjum í verksmiðjunni þar hann vinnur.