Meira en þrjár milljónir barna hafa fæðst í Jemen frá því stríðið braust út í mars 2015. „Heil kynslóð barna sem er að vaxa úr grasi í Jemen þekkir ekkert annað en ofbeldi. Börnin í Jemen hafa þurft að þola átakanlegar afleiðingar stríðs sem þau hafa ekkert vald yfir,“ segir Meritxell Relano, fulltrúi UNICEF.