Tugir þúsunda hafa þegar komið saman á götum bandarískra borga vegna fjöldafunda sem halda á vítt og breitt um landið í dag til að kalla eftir hertari byssulöggjöf. „Þessu lýkur núna!“ sagði Adam Buchwald, einn þeirra sem lifði af árásina í Parkland, við fundargesti í Fort Lauderdale.