„Það er einn dagur sem stendur algjörlega upp úr,“ segir Davíð Gunnarsson sem nýlega kom heim úr 11 vikna reisu um Suðaustur-Asíu og Ástralíu. Dagurinn var hluti af tveggja daga siglingu eftir Mekong ánni þar sem hann fór í heimsókn í sveitaþorp í Laos ásamt kærustu sinni og frænku.