Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir rannsókn á brunanum í fiskeldi Samherja við Núpa í Ölfusi komna af stað og Mannvirkjastofnun og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru komin á vettvang. Slökkvistarf gekk vel en ljóst er að tjón er mikið.