„Þetta er langflottasti borgarísjaki sem ég hef séð,“ segir Magnús B. Jónsson í samtali við mbl.is um borgarísjaka sem liggur nú í Húnaflóa. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá hvernig tignarlegur ísjakinn teygir sig hátt til lofts. Magnús telur að hann sé um 25-30 metra hár.