Tómas Þröstur Rögnvaldsson þakkar fyrir að ekki hafi farið verr þegar silfurgrár Mercedes Benz birtist óvænt fyrir framan bifreið hans á hádegi á sunnudag í Ártúnsbrekkunni. Samkvæmt vitnum var Benz-bifreiðinni ekið á ofsahraða af aðrein inn á N1-bensínstöðina í Ártúnsbrekkunni þar sem bílstjórinn missti stjórn á bifreið sinni með fyrrnefndum afleiðingum.