Nú stendur yfir mikil uppbygging við Gullfosskaffi þar sem um 3-5 þúsund ferðamenn staldra við á degi hverjum. Verið er að styrkja innviði rekstursins til að geta þjónustað ferðamenn betur. Eigandinn segir að breyting á samsetningu ferðamanna hafi dregið úr áhrifum fækkunar.