Kjörstaðir hafa verið opnaðir í Labrador og á Nýfundnalandi í austurhluta Kanada þar sem landsmenn kjósa til þings. Landið nær yfir sex tímabelti og því mun kjörfundur standa samtals yfir í 14 klukkustundir. Gangi spár verða þetta tvísýnustu úrslitin í stjórnmálasögu Kanada.