Chelsea heimsækir Manchester City í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 17:30 í dag. Chelsea hefur unnið sex síðustu leiki sína í deildinni og er komið upp í þriðja sæti með einu stigi meira en ríkjandi Englandsmeistarar City sem töpuðu fyrir Liverpool í síðustu umferð.