„Við höfðum hundruð milljóna lífefna á jörðinni og á sekúndubroti í jarðfræðilegu samhengi hefur okkur tekist að klúðra málum,“ sagði listamaðurinn Ólafur Elíasson í viðtali í Norðurslóðablaði Morgunblaðsins á dögunum. Búið er að opna sýningu hans þar sem breytingar á jöklum landsins eru skoðaðar.