Dans á götum úti og iðandi mannlíf við vinsæl kennileiti borgarinnar Wuhan heyrir nú sögunni til, að minnsta kosti um tíma. Frá því að kórónuveiran sem veldur COVID-19-sjúkdómnum greindist í borginni í lok síðasta árs hefur borgin umbreyst í draugaborg, borg sem eitt sinn iðaði af mannlífi og menningu.