Argentíski siglingamaðurinn Juan Manuel Ballestero sigldi yfir Atlantshafið frá Portúgal til Argentínu í heimsfaraldrinum. Ballestero ætlaði að fara að heimsækja aldraða foreldra sína en vegna kórónuveirunnar gat hann ekki flogið heim. Hann ákvað því að fara sjóleiðina.