Newcastle vann öruggan sigur á Bournemouth á útivelli, 4:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Newcastle lyfti sér upp í 12. sætið með 42 stig en Bournemouth datt niðurfyrir Aston Villa á markatölu og í næstneðsta sætið með 27 stig.