Olivia de Havilland, ein síðasta stjarnan frá gullöld Hollywood, er látin 104 ára að aldri. Ferill de Havilland spannaði meira en 50 ár og lék hún í um 50 kvikmyndum, þar á meðal Gone With the Wind sem kom út árið 1939 en fyrir leik sinn í myndinni hlaut hún eina af fimm tilnefningum sínum til Óskarsverðlauna.