Manchester United vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið heimsótti Brighton á Amex-völlinn í dag. Skoraði Bruno Fernandes sigurmarkið úr vítaspyrnu eftir að Chris Kavanagh dómari flautaði til leiksloka á tíundu mínútu uppbótartímans. Öll helstu atvik leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.