„Ég vildi vinna og ég vildi vinna strax,“ sagði Sol Campbell, fyrrverandi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, í samtali við Tómas Þór Þórðarson á Símanum sport um félagsskiptin sín frá Tottenham til nágrannanna og erkifjendanna í Arsenal árið 2001.