Staðsetning á nýlegum ljósastaur við Móaveg í Grafarvogi hefur vakið athygli að undanförnu og ekki alveg að ósekju. Staurnum hefur verið komið fyrir á miðri gangstétt og lítur út fyrir að það sé talsverð áskorun fyrir fólk í hjólastólum að smeygja sér fram hjá honum.