Þingmaður Framsóknarflokksins segir skiljanlegt að Alistair Darling fjármálaráðherra Breta hafi farið að efast um Íslendinga eftir samtal sitt við Árna M Mathiesen um Icesave. Fjármálaráðherra segir þingmanninn hafa betri innsýn í hugarheim þeirra sem beiti hryðjuverkalögum en hann sjálfur.