Myndlistarsýningar á dekkjaverkstæðum virka mögulega jafn fjarstæðukenndar og að furðufuglum í bangsafötum takist að ráðast inn í bandaríska þingið, en eru þó jafn raunverulegar. Nú má finna tvær slíkar í borginni og á annarri má sjá fáklæddar konur á veggjunum sem mun vera sjaldgæft nú til dags.