„Stundum fór það í taugarnar á manni þegar maður var að spila við lið eins og Möltu sem við vorum bara vanir að vinna,“ sagði Guðmundur Eggert Stephensen, margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis, um fjölda kínverskra leikmanna í landsliðum heims í dag í Dagmálum, nýjum frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.