Sheikha Asma Al Thani ætlar að ná tindi Everest í maí á þessu ári. Fari allt eftir áætlun verður hún fyrsta konan frá Mið-Austurlöndum til að ná svokallaðri alslemmu landkönnuða (e. explorers grand slam) sem felur í sér að klífa tinda hæstu fjalla í öllum heimsálfum og fara á bæði norður- og suðurpólinn.