Lögreglan gæti þurft að verja mótmælendur sem nú hafa haft sig mest í frammi, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn og segir velþekkt að ólíkum hópum ljósti saman í svona ástandi. Tveir menn ógnuðu mótmælendum fyrir utan Hótel Borg á gamlársdag. Þá hafa rúður í verslun eins mótmælanda verið brotnar.