Spænsk yfirvöld hafa vísað um helmingi þeirra sem komu með ólöglegum hætti inn í landið frá Marokkó í gær og í dag. Talið er að ríflega sex þúsund hafi farið yfir landamærin það sem af er deginum og hafa þeir aldrei verið fleiri. Búið er að vísa 2.700 þeirra þegar úr landi.