Theodór Francis Birgisson guðfræðingur og þerapisti hjá Lausninni var gestur í þættinum Heimilislífi á dögunum. Í þættinum var hann spurður hvers vegna fólk kæmi í hjónabandsráðgjöf og þá sagði hann að það væru yfirleitt alltaf þrjár sömu ástæðurnar fyrir því að hjón væru upp á kant hvort við annað.