„Ég fæ að sjá ljós, kærleik og alls konar birtingarmyndir. En ég get ekkert sagt: Þetta er svona,“ segir miðillinn Anna Birta Lionaraki um klemmuna sem hún kemst reglulega í þegar fólk hefur efasemdir um að hægt sé að sjá hluti sem eru handan okkar veraldlega heims. Hún líkir upplifuninni við að vera stödd í kvikmyndinni The Truman Show.