Guðni Gunnarsson, eigandi Rope Yoga-setursins, er frumkvöðull sem andlegur leiðbeinandi og lífsþjálfi á Íslandi. Um þessar mundir býður Guðni lesendum mbl.is upp á 14 daga áskorun. Áskorunin snýst um að auka vellíðan og vitræna nálgun á huga og sál í nokkrum skrefum. Með hverju nýju skrefi hefst ný áskorun - ný vegferð í átt að velsæld.