Að hugleiða bætir einbeitinguna og færir þér ró og yfirvegun. Athyglisgáfa nútímafólks er oft á tíðum skert þar sem hraðinn í samfélaginu er svo mikill. Áskorun dagins er einföld. Hún snýr að því að þú gefir þér tíma í að tyggja matinn sem þú lætur ofan í þig hverju sinni.