Halla Gunnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri ASÍ, segir ekki skrýtið að fólk skilji ekki um hvað átökin í ASÍ snúast. „Ég hef ekki skilið það. Ég hef samt verið inni á öllum þessum fundum og inni í þessum kjarna og þetta hefur stundum verið einhver allsherjar þeytivinda og þegar maður stígur út úr henni veit maður varla hvað maður heitir sjálfur,“ segir Halla.